28.08.2026
Leikmenn Þórs/KA munu ganga inn á völlinn í leiknum gegn Þrótti á morgun í alls konar fótboltatreyjum, eins og reyndar leikmenn allra annarra liða í Bestu deild kvenna og karla í leikjum sem fram fara dagana 28. ágúst til 1. september. Tilefnið er Treyjudagurinn sem haldinn er 4. september til að vekja athygli á og styrkja félagið Börn með krabbamein.
28.08.2026
Þór/KA sækir Þrótt heim í 18. umferð Bestu deildarinnar á morgun, næstsíðustu umferðinni fyrir tvískiptingu deildarinnar. Leikurinn hefst kl. 14.
22.08.2026
Þrátt fyrir talsverða yfirburði í fyrri hálfleik og fjölda hættulegra færa í báðum hálfleikjum tókst Þór/KA ekki að skora þegar liðið tók á móti Val í 17. umferð Bestu deildarinnar í gærkvöld. Gestunum tókst hins vegar að koma boltanum einu sinni í netið eftir nokkuð skondið atvik og fóru því með öll stigin suður.
20.08.2026
Þór/KA tekur á móti Val í 17. umferð Bestu deildarinnar á morgun, föstudaginn 21. ágúst. Flautað verður til leiks kl. 18.
15.08.2026
Stjórn Þórs/KA hefur samið við Lauren Lapomarda um að leika með liðinu út yfirstandandi tímabil. Lauren hefur tvöfalt ríkisfang, bandarískt og ítalskt.
15.08.2026
Þór/KA vann sinn fyrsta útisigur í Bestu deildinni í sumar og sótti langþráð þrjú stig í greipar Víkinga í gær. Hildur Anna Birgisdóttir, Erin Flurey og Hulda Ósk Jónsdóttir skoruðu mörkin. Sigurinn skilar liðinu upp í 6. sæti deildarinnar.
14.08.2026
Við höfum lengi notið þess að eiga góða að þegar kemur að áhugaljósmyndurum. Fyrir það erum við þakklát.
14.08.2026
Við höfum lengi notið þess að eiga góða að þegar kemur að áhugaljósmyndurum. Fyrir það erum við þakklát.
14.08.2026
Þór/KA sækir Víking heim í 16. umferð Bestu deildar kvenna í dag. Flautað til leiks í Víkinni kl. 18.
08.08.2026
Karen Hulda Hrafnsdóttir og Erin Flurey sáu um að koma boltanum í net gestanna í 2-0 sigri á Fram í 15. umferð Bestu deildarinnar í gærkvöld. Þór/KA færði sig upp um eitt sæti í deildinni með sigrinum.